Tomorrow :) 03/23/2012
Add Comment Gleðilegt nýtt ár 01/17/2012
Þá er jólahátíðin afstaðin og þorrahátíðin að farað ganga í garð með sínum tilheyrandi hátíðarhöldum. Menn og dýr í Fagranesi höfðu það virkilega gott yfir hátíðirnar. Hestamennskan er komin í gang aftur eftir smá hlé, sem og annar búskapur. Hesthúsið er að vanda fullt af hestum svo það er nóg að gera. Við stefnum þó á að fara með 4 hross inn í Krók til að geta notað reiðhöllina þar í nokkra daga. Þó inniaðstaðan okkar sé góð, þá er líka gott að breyta til. Veðrið hefur verið að leika okkur grátt undanfarið, en þó er ísinn að fara, og er farinn af veginum, svo hægt er að reka og ríða þar slysalaust. Diskódís frá Fagranesi 11/01/2011
Við erum mjög svo stolt af þessari sérstöku hryssu sem við eigum. Liturinn alveg ævintýralegur, geðslagið svo gott, og byggingin sterkleg og falleg. Faðir hennar er Glampi frá Vatnsleysu og móðir Neista frá Fagranesi. Ýmislegt 08/26/2011
Við förum oft í stutta rekstra um nágrennið til að trimma hrossin. Það kemur fyrir að frábært fólk ríður með okkur og þá er auðvitað ofsalega skemmtilegt. Oft er riðið seinnipart eða undir kvöld, og ef reiðtúrinn dregst á langinn fáum við oft dásamlega kvöldsól og yndislegt sólarlag eins og sést á þessari mynd. Ég tók reyndar mun fleiri myndir af herlegheitunum, en þar sem eg var á baki, voru þær flestar hreyfðar. Þótt myndir segi meira en þúsund orð finnst mér þessi mynd ekki ná alveg hversu frábært útsýnið var í logninu, en hún dugar. Myndin er af fjárhúsinu á Meyjarlandi og Drangey og er tekin úr Ynnstalands hlíðinni. Sumarið hefur mikið farið í þjálfun á eldri og tamdari hestum, búin að fara í fullt af ferðum, löngum og stuttum. Við höfum lítið verið í frumtamningum, en leggjumst á fullt í það eftir um 2 vikur, þegar tryppin okkar koma af fjalli. ![]() Hafþór Ingi og Pabbi sinn við Gullfoss Við í litlu fjölskyldunni skelltum okkur í smá ferðalag í ágúst. Við keyrðum kjöl suður og fórum svo þjóðveg 1 austur og hringveginn heim. Við hittum fullt af æðislegu fólki og allstaðar var tekið höfðinglega á móti okkur. Við heimsóttum meðal annars Heimsmeistara-ræktendurna í Fellskoti, Mæju og Kidda. Alltaf frábært að koma til þeirra!!!!! Við komum líka við á Torfastöðum hjá Sólon og Þórey, Kolsholti hjá Helga og Oddnýju, Horni hjá Ómari, Úlfsstöðum hjá Helga og að sjálfsögðu kíktum við í hesthúsið hjá Tjarnalands-tröllinu Einari. Þetta var frábær ferð og hefði alveg mátt vara í fleiri daga, en það gekk víst ekki í þetta skiptið. Hrossarag 07/21/2011
Þá erum við búin að sækja allan hópinn frá Reykjum, þ.e. öll hrossin okkar. Við gáfum þeim ormalyf í dag og skoðuðum þau vel og vandlega. Þau verða svo rekin á fjall þegar færi gefst. Hópurinn lítur ofsalega vel út og spennandi verður að fá hann heim af fjalli í haust. Á myndinni er fremst 2ja vetra hryssa undan Prins frá Garði og Drift frá Miðsitju. Prýðilega falleg og skemmtilega geng. Hafþór Ingi fékk sinn fyrsta hest um daginn þegar Freisting frá Keldulandi kastaði brúnskjóttum, höttóttum, blesóttum hesti. Faðir hestfolaldsins er gæðingurinn Prins frá Garði. En þá eru öll folöldin komin í heiminn. Svo er búið að keyra hryssum undir hesta, Von frá Syðra-Velli fór til Steinnes frá Fagranesi, Kiljanssonurinn okkar. Neista frá Fagranesi fór undir Smára frá Skagaströnd, eins og Drottningin mín sem er líka frá Fagranesi. Otursdóttirin Eldey frá Ljótsstöðum fór til Roða frá Garði og Freisting fór aftur undir Prinsinn. Nú seinast keyrðum við Fegurð frá Fagranesi undir fótaburðasprengjuna Sindra frá Vatnsleysu. Þannig við tekur tilhlökkun fyrir folöldum næsta sumars. Mér sýnist á folöldunum núna að fallegasta folaldið, eða allavega það sem höfðar mest til mín sé jarpa hryssan undan Fegurð og Smára. Svo fíngerð, með fallegan háls og mjúkar gangtegundir. Við eigum tvo folatitti, sem eru báðir í hólfum í sumar. Þeir eru báðir undan Otursdótturinni okkar henni Eldey. Eldri folinn er þriggja vetra, undan Fagra frá Reykjum. Mjög smart klárhestur sem ber nafnið Eldur. Hann er í Skuggabjörgum hjá Palla og Tullan. Yngri bróðir hans er árinu yngri og undan tækinu Kiljan frá Steinnesi, sá heitir Steinnes frá Fagranesi. Hann er í hólfi hjá Veðramóts-bændum. Hann er alhliða pjakkur, mjög sperrtur, með flottan fótaburð. 2 hryssur til viðbótar fæddar 06/15/2011
Segja má að algjört hryssu-lán leiki við okkur þetta árið. 5 hryssur fæddar okkur, en þó 2 folöld eftir að koma í heiminn. Þessar nýju prinsessur eru algjör draumur. Önnur er undan Neistu okkar frá Fagranesi, og Kná frá Vallholti. Knár er þrusuflottur móálóttur foli undan Bombunni Sæ frá Bakkakoti. Sú hryssa sem fæddist er Jarpskjótt, alveg æðislega flott. Hin hryssan sem fæddist er undan Fegurð frá Reykjum, Sú er undan Fáfni frá Fagranesi og fyrir þá sem þekkja til þá er Fegurð systir Fagra, Konsa og Wiský að móðurinni. Litla hryssan er svo undan Gæðingnum Smára frá Skagaströnd og er jörp að lit eins og pabbi sinn. Ekki er neitt hægt að Framkvæmdargleði í Fagranesinu 06/01/2011
Brynjólfur bóndi réðst í fræmkvæmdir á dögunum. Töluvert var skipulagt og mælt, síðan var hringt í Einar Val og smellt upp hringvelli á einum degi eða svo !! Völlurinn er þegar kominn í notkun þótt ýmislegt eigi eftir að klára, og erum við ferlega spennt og ánægð með verkið. This is your new blog post. Click here and start typing, or drag in elements from the top bar. 2 folöld til viðbótar 06/01/2011
Rauðstjörnótta hryssan er undan Spurningu frá Fagranesi, MF: Safír frá Viðvík, og Eldi frá Fagranesi. 3ja vetra fola, undan Fagra og Otursdótturinni okkar, Eldey. Virkilega hugguleg hryssa sem fer um á svifmiklu og flottu brokki. Brúna hryssan fyrir neðan hefur hlotið nafnið Steinunn frá Fagranesi. Hún er undan Smára frá Skagaströnd og Otursdótturinni okkar henni Eldey. Steinunn litla er alveg æðislega falleg og við erum ofsalega ánægð með hana. Fyrsta folaldið fætt 05/20/2011
Fyrsta folaldið úr okkar ræktun fæddist í dag. Folaldið er fætt á Skuggabjörgum hjá Palla, því við fengum meri frá honum lánaða seinasta sumar og héldum henni undir Eld okkar. Við eigum hryssu nefnda Upplyftingu frá Skuggabjörgum sem er frábær klárhryssa, og er undan þessari hryssu hans Palla. Upplyfting okkar er undan Fagra hans Brynjólfs, sem Eldur er einmitt undan. Þannig nú fæddist okkur LEIRLJÓS hryssa, sammæðra Upplyftingu og undan Eld. Virkilega skemmtilegt. Stefnum yfir í Deildardalinn fljótlega að skoða skottuna. | FagranesBrynjólfur Þór Jónsson ArchivesMarch 2012 Categories |











RSS Feed